Potentilla fruticosa

Ættkvísl
Potentilla
Nafn
fruticosa
Yrki form
'Abottswood'
Íslenskt nafn
Runnamura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
40-50 sm
Vaxtarlag
Þéttur, þýfður runni.
Lýsing
Lauf dökkblá. Stór, hreinhvít blóm og blágræn blöð.
Uppruni
Yrki.
Harka
h7
Heimildir
7
Fjölgun
Sumargræðlingar, 7,5 sm langir græðlingar með hæl síðsumars.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæður runni, í raðir, í steinhæð. Byrjar seint að blómgast og þarf hlýjan vaxtarstað.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein aðkeypt planta, sem gróðursett var í beð 1996. Kelur talsvert flest ár.