Potentilla fruticosa

Ættkvísl
Potentilla
Nafn
fruticosa
Yrki form
Mackays White
Íslenskt nafn
Runnamura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rjómahvítur til hreinhvítur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Vaxtarlag
Fallegur, þýfður runni.
Lýsing
Blómin eru rjómahvít í fyrstu en verða síðar hreinhvít. Laufið er milligrænt til dökkgrænt. Runninn er meðalgrófgerður, óreglulegur í vextinum með bogaformaðar greinar. Blómin eru stök, standa lengi.
Uppruni
Yrki.
Harka
H4
Heimildir
http://www.quebecmultiplants.com
Fjölgun
Sumargræðlingar, 7,5 sm langur græðlingar með hæl síðsumars.
Notkun/nytjar
Þarf litla umhirðu, langur blómgunartími og fjölbreytileg runnamuruyrki eru fallegir runnar að hafa í garðinum. Þeir leggja garðinum til fallega liti í fáeina mánuði.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta sem gróðursett var í beð 2001, hefur kalið mikið sum árin.