Potentilla fruticosa

Ættkvísl
Potentilla
Nafn
fruticosa
Yrki form
William Purdom
Íslenskt nafn
Runnamura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Purdomii
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fölgulur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
- 1 m
Vaxtarlag
Allt að 1 m hár runni.
Lýsing
Lauf 3 sm löng, smálauf 7, aflöng-oddbaugótt, fölgræn ofan grágræn neðan. Blóm 2-2,5 sm, fölgul.
Uppruni
Yrki.
Harka
H4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar, 7,5 sm langir græðlingar með hæl síðsumars.
Notkun/nytjar
Í beð, í þyrpingar, í brekkur.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta, sem þrífst vel, kelur fremur lítið að minnsta kosti hin síðari ár.