Potentilla gracilis

Ættkvísl
Potentilla
Nafn
gracilis
Íslenskt nafn
Gresjumura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
- 60 sm
Vaxtarlag
Uppréttur fjölæringur, allt að 60 sm hár.
Lýsing
Blómleggir grannir dúnhærðir. Grunnlauf á löngum legg, handskipt, smálauf 5-7 talsins, allt að 5 sm, öfugegglaga eða öfuglensulaga, jaðrar djúp- og hvasstenntir. Laufin græn og slétt eða því sem næst á efra borði með hvít hár á neðra borði, stoðblöð stór, lensulaga, hærð. Legglaufin fá, næstum legglaus. Blómin mörg, allt að 2 sm í þvermál, í skúfum. Bikarblöð egglaga, með mjóan odd, utanbikarblöð lensulaga. Krónublöð öfughjartalaga, gul, lengri en bikarblöðin.
Uppruni
V Bandaríkin.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta, sem sáð var til 1994, þrífst vel.