Potentilla neumanniana

Ættkvísl
Potentilla
Nafn
neumanniana
Íslenskt nafn
Vormura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Potentilla verna, P. tabermonata
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Maí-júlí.
Hæð
- 10 sm
Vaxtarlag
Lík íslensku gullmurinni, rótskeyttir stönglar, myndar fljótt breiðu.
Lýsing
Sígrænn fjölæringur sem myndar breiður, allt að 10 sm hár. Stilkar trékenndir, skriðulir, rætur myndast á liðunum. Laufin fingruð, smálauf 5-7 talsins, allt að 4 × 1,5 sm, öfugegglaga, tennt, grunnlauf mjó. Blóm allt að 12 talsins, 2,5 sm í þvermál, á axlastæðum leggjum. Bikarblöð egglaga, utanbikarblöð lensulaga, oddlaus, styttri en bikarblöðin. Krónublöðin 10 mm, gul, lengri en bikarblöðin.
Uppruni
N, V og M Evrópa.
Harka
3
Heimildir
= 1, HS
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð, í kanta og sem þekjuplanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til 3 plöntur sem sáð var til 1990, 1994 og 1995, allar þrífast vel. Harðgerð, vinsæl vegna blómgunartímans, snemma að vorinu.
Yrki og undirteg.
Goldrausch allt að 10 sm há, blómin skærgul.Nana´ allt að 7,5 sm há, laufið skærgrænt, blómin gullgul.