Potentilla tridentata

Ættkvísl
Potentilla
Nafn
tridentata
Íslenskt nafn
Grænlandmura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Sibbaldiopsis tridentata (Aiton) Rydb.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur,
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
5-20 sm
Lýsing
Fjölæringur með skríðandi jarðstöngla og skríðandi ofanjarðarstöngla, neðantil eru þeir dálítið trékenndir, blómstönglar eru 5-20 sm háir. Lauf eru þrífingruð, glansandi, sígræn, með aflöng, fleyglaga smáblöð sem enda í 3 tönnum, næstum hárlaus eða mjög sjaldan hærð bæði ofan og neðan (f. hirsutifolia Pease). Fínleg, hvít blóm í fá- eða margblóma klasa. Smáhnetur hærðar. Laufin verða vínrauð að haustinu.
Uppruni
N Ameríka (Bandaríkin & Kanada) Grænland.
Heimildir
24, http://plants.usda.gov, http://www.abnativeplants.com
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Þéttvaxin þekjandi planta sem þrífst í þurrum jarðvegi, helst súrum. Vaxtarstaðir eru klappir, þurrt graslendi, sendnir staðir á kalksnauðum stöðum. Þrífst í súrum jarðvegi.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru þrjár plöntur, sumar áratuga gamlar, allar þrífast vel.