Primula aurantiaca

Ættkvísl
Primula
Nafn
aurantiaca
Íslenskt nafn
Glóðarlykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómalitur
Dökk brandgulur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Blómstönglar stinnir, rauðleitir með 2-6 kransa af blómum. Blöðin fremur stór og þunn.
Lýsing
Lík glóeyjarlykli (Primula chungensis) en miðæðastrengurinn rauðpurpura. Lauf dekkri en á glóeyjarlykli með smáar og reglulegar tennur. Blómstönglar svartleitir eða rauðleitir, ekki mélugir. Stoðblöð jafn löng og eða lengri en blómleggurinn. Bikar mjóbjöllulaga, allt að 8 mm, með purpuraslikju. Krónupípa ekki meira en 2 x lengd bikarsins, blóm venjulega brún-brandgul.
Uppruni
Yunnan í SV Kína.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
6
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, skipta þarf oft, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skýld skrautblómabeð.
Reynsla
Bráðfalleg tegund og nokkuð harðgerð, en oft skammlíf. Þarf vetrarskýli á snjóléttum stöðum, henni er haldið við með skiptingu og geymslu í sólreit.