Primula auricula

Ættkvísl
Primula
Nafn
auricula
Ssp./var
ssp. auricula v. albocincta
Höfundur undirteg.
Widm.
Íslenskt nafn
Mörtulykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Samheiti
Primula auricula L. bauhinii (Beck) Lüdi
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Ljósgulur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-15 sm
Vaxtarlag
Mjög flott lágvaxin steinhæðarplanta sem myndar miklar hvirfingar af stórum þykkum grágrænum blöðum.
Lýsing
Blómin ljósgul með hvítu auga í sveip á stöngulendum 10-15 sm langra stöngla, sveipurinn lútandi, margblóma. Blóm hvítmélug í blómgininu. Blöð þykk og stíf, löng, fleyglaga, ljósgrágræn, mikið mélug. Blaðjaðrar hvítir af kalkútfellingum.
Uppruni
Dólómíta-fjöll.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
3
Heimildir
1, 2
Fjölgun
Fjölgað með skiptingu eða sáningu.
Notkun/nytjar
Þolir illa að standa í mikilli bleytu að vetrinum.
Reynsla
Í steinhæð frá 1992 og er eitt af uppáhalds vorblómum.
Yrki og undirteg.
Þessi tegund á sér ekki nein náttúruleg heimkynni, heldur er þetta ræktað úrval úr mjög mélugum mörtulyklum en þeir eru nokkuð breytilegir í náttúrunni. Sumar heimildir telja þetta þó náttúrulegan blending frá Slóveníu.