Primula chionantha

Ættkvísl
Primula
Nafn
chionantha
Íslenskt nafn
Mjallarlykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Hvítur, rjómahvítur, lilla eða purpura.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
30-70 sm
Vaxtarlag
Upprétt, blóm í krönsum á löngum, blaðlausum blómstönglum. Hreistur vetrarbruma rauðleit.
Lýsing
Laufin 5-25 sm x 6-60 mm, öfuglensulaga, næstum upprétt, mismikið þakin gulri eða hvítri mélu.Blómstönglar 35-70 sm, meira eða minna jafn löng laufunum, streklegir, uppréttir með 1-3 kransa hver með 4-15 álút blóm. Blómleggir allt að 3 sm, uppsveigðir. Bikar allt að 1 sm, mélugur. Blóm að 3 sm í þvemál, flöt skífa, kragalaus eða með daufan kraga, hvít, rjómalit, lilla eða purpuralit, með eða án hvíts auga. Krónupípa nær út úr bikarnum. Fræhýði oftast 2 x lengd bikarsins.
Uppruni
SV Kína.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
6
Heimildir
= 1,2,12
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, skipta þarf oft, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í skýld skrautblómabeð.
Reynsla
Viðkvæm og oftast skammlíf í ræktun.
Yrki og undirteg.
ssp. chionantha - Plöntur stórar og grófgerðar, gulmélugar, lauf meira en 1,5 sm á breidd, blóm hvít, fræhýði ekki meira en 2 x bikarinn. --- ssp. sinopurpurea (Balf.) Richards. Lík ofangreindri deilitegund nema blómin eru purpura. Heimkynni: V Kína. (2). ----- ssp. sinoplantaginea (Balfour) Richards. Fremur smáar plöntur og hálfjarðlægar, mjöl gulleitt. Blóm minna en 1 sm í þvermál, blóm purpura. Heimkynni: SV Kína. (2).