Primula cortusoides

Ættkvísl
Primula
Nafn
cortusoides
Íslenskt nafn
Sjafnarlykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Rósrauður til bleikfjólublár.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Fínleg tegund, með þunn, sumargræn blöð í þyrpingum sem vaxa upp af stuttum, kröftugum jarðstönglum.
Lýsing
Laufblaðkan 2-9 x 1,5-6 sm, egglaga til aflöng, bogadregin í endann eða snubbótt, flipar óreglulegir, tenntir, laufleggir 2-20 sm, þétthærðir.Blómstönglar eru 15-30 sm, hærðir a.m.k. neðan til með 1 eða fleiri 2-15 blóma sveipi með ögn drúpandi blómum. Blómleggir 1-3 sm langir. Bikar 5-7 mm, pípulaga til pípu-bjöllulaga, hárlaus eða lítt hærður, æðóttir, flipar uppréttir. Krónan 1,5-2 sm í þvermál, rósrauð eða rauð til bleikfjólublá, með kraga. Krónupípa nær fram úr bikarnum, flipar bogadregnir, mis- og djúpsýldir. Fræhýði aflöng, lengri en bikarinn.
Uppruni
N Japan, N-Mongólía, Rússland.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
3
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í skuggsæl beð.
Reynsla
Fremur viðkvæm tegund - af og til í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
var. albiflora Theodore & Fedtsch. - hvít blóm. Heimk.: N Monólía, Rússland.