Primula denticulata

Ættkvísl
Primula
Nafn
denticulata
Yrki form
'Alba'
Íslenskt nafn
Kúlulykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Maí-júní (snemma vors).
Hæð
10-30 sm
Vaxtarlag
Mjög breytileg tegund við náttúrulegar aðstæður, venjulega stórar og sumargrænar í ræktun með stór, langæ, leðurkennd, brumhreistur utan á blaðhvirfingunni.
Lýsing
Lauf 1,5-6 sm x 5-20 mm, oddbaugótt eða aflöng-oddbaugótt til spaðalaga, ögn stutthærð með 1-frumu hárum. Ung lauf lítið eitt mélug á neðra borði og leðurkennd. Laufin lengjast í 30 sm eða meira við aldinþroskann, laufleggir venjulega rauðir við grunninn. Blómstönglar 5-30 sm og lengjast í allt að 50 sm við aldinþroskann, venjulega mélugir ofan til í fyrstu. Blómskipunin er kúlulaga fullþroskuð, allt að 8 sm í þvermál. Blóm legglaus eða því sem næst, upprétt. Bikar 5-10 mm, mélugur, stundum með ógreinilegar purpuralitar rákir. Krónan 1-2 sm í þvermál, hvít með gult auga. Krónupípa 2 x bikarinn.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, skipta þarf plöntunni oft, annað/þriðja hvert ár til að halda henni lifandi.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta, í hleðslur, í þyrpingar
Reynsla
Stundum fremur skammlíf í ræktun. Þarf vetrarskýlingu þar sem snjóalög eru ótrygg. Á að skipta oft. Þannig er auðvelt að halda honum við. Þrífst best í frjóum, vel framræstum, rakaheldum jarðvegi og við jafnan, góðan raka á vaxtartímabilinu.