Primula elatior

Ættkvísl
Primula
Nafn
elatior
Íslenskt nafn
Huldulykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Ljósgulur/dökkgul-grængul miðja.
Blómgunartími
Maí-júní (snemma vors).
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Blaðhvirfing með upprétt lauf í fyrstu en verða smátt og smátt útbreiddari eftir því sem líður á sumarið. Blómstönglar stinnir, uppréttir. Öll plantan yfirleitt þakin stuttum, hrokknum hárum.
Lýsing
Lauf fremur stór, 5-20 x 2-7 sm, egglaga til aflöng eða sporbaugótt, oddur bogadreginn, mjókkar venjulega snögglega í vænjaðan lauflegg, fíntennt, hærð eða hárlaus ofan.Blómstönglar 10-30 sm, uppréttir, hærðir. Sveipurinn einhliða með allt að 12 hangandi blóm. Bikar allt að 1,5 sm, flipar langyddir. Krónan allt að 2,5 sm í þvermál, skállaga eða flöt skífa, föl- eða skærgul með ógreinilega grænleita eða appelsínugula bletti í gini. Pípa nær út úr bikarnum, flipar breiðir og skarast, grunn- og breiðsýld. Fullþroskað fræhýði lengra en bikarinn. Fræ 1-1,5 mm í þvermál, nær kringlótt, dökkbrún til svört.
Uppruni
Evrópa, N-Íran, Tyrkland, Rússland.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að hausti, sáning að vori, fræ þarf ekki kuldameðferð.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í fjölæringabeð.
Reynsla
Meðal algengustu garðlykla, mjög breytileg tegund. Mikið ræktuð og afbragðs garðplanta.
Yrki og undirteg.
Nokkrar deilitegundir í ræktun. T.d. má nefna skv. lýsingum í EGF. -----------------ssp. elatior Lauf hærð, blaðka mjókkar snögglega að blaðstilk, tennt. Blóm venjulega fjölmörg á hverjum blómstöngli, allt að 2,5 sm í þvermál, brennisteinsgul. ----------------ssp. intricata (Gren. & Gord.) Lüdi. Lauf hærð, mjókka smám saman að lauflegg, nær heilrend. Blóm allt að 7 á hverjum blómstöngli, um 2 sm í þvermál, flöt, skærgul. Heimkynni: Fjöll í Evrópu. ---------------------ssp. leucophylla (Pax) Heslop-Harrisson ex W.W. Sm. & Forr. Laufgast og blómgast á sama tíma, með grá hár í fyrstu, blaðkan mjókkar smám saman að laufleggnum, með smáar bogadregnar tennur eða heilrend. Blóm fá, allt að 1,6 sm í þvermál, trektlaga, fölgul. Heimkynni: A Karpatafjöll, Kákasus.ssp. lofthousei (Heslop-Harrisson) W.W. Smith. & Fletch. Er frábrugðin ssp. intricata að því leyti að blómin eru mörg og smærri, dökk sóleyjargul. Heimk.: S Spánn. ----------------------------ssp. meyeri (Ruprecht.) Valentine & Lamond. Mjög breytileg undirtegund, en blómin eru alltaf blá til fjólublá. Heimk.: NA Tyrkland, Kákasus (í rússnesku flórunni er hún undir P. amoena og hefur verið í ræktun hérlendis sem Lofnarlykill). -----------------ssp. pallasii (Lehmann) W.W. Sm. & Forrest Lauf hárlaus eða því sem næst, mjókka smám saman að laufleggnum, gróftennt. Blómin fá á hverjum stöngli, allt að 2,5 sm í þvermál, fölgul. Heimkynni: Tyrkland, N Íran, Úralfjöll til A Síberíu. --------------ssp. cordifolia (Ruprecht) W.W. Smith & Forrest Lauf tiltölulega slétt, bronsgræn, hárlaus, mjókka snögglega í langan, grannan lauflegg. Blómstönglar dökkir, blóm sítrónugul. Heimkynni: Kákasus.---------------------------ssp. pseudoelatior (Kusnetsow) W.W. Smith & Forrest er frábrugðin ssp. elatior að því leyti að hún er með hjartalaga og loðnara lauf. Heimkynni: Tyrkland, Kákasus.