Primula macrophylla

Ættkvísl
Primula
Nafn
macrophylla
Íslenskt nafn
Hoflykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómalitur
Bleikpurpura, blálilla, sjaldan hvítur
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-25 sm
Vaxtarlag
Stinn, löng blöð í blaðhvirfingum. Vetrarbrum smá, hreistur rauðleit og mélug.
Lýsing
Lauf mjólensulaga, venjulega upprétt, þunn, heilrend til fínbylgjutennt, venjulega hvítmélug, blaðkan allt að 12 x 3 sm. Blómstilkar yfirleitt lengri en laufin, grannir, mélugir ofantil með 2-20 hangandi blóm í sveip. Blómleggir lengri en bikarinn, lengjast við aldinþroskann. Krónan allt að 2,3 sm í þvermál. flöt skífa með kraga, oft ilmandi, bleikpurpura, blálilla, sjaldan hvít, venjulaga með dökkt eða gult auga, flipar venjulega heilrendir en stundum sýldir. Fræhýði ekki meira en 2 x bikarinn.
Uppruni
Afganistan, Tadsikistn, N Pakistan, V & M Nepal, Indland, Bútan, SV Kína.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
6
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í skýld beð.
Reynsla
Virðist nokkuð harðgerð á Akureyri (H.Sig.).
Yrki og undirteg.
var. macrophylla - Tiltölulega stórar plöntur, hvítmélugar, stoðblöð stutt, bikar um það bil 1 sm, klofinn að 1/3, krónuflipar heilir. Sama útbreiðsla og aðaltegundin. -----var. moorcroftiana (Klatt.) Pax. - Smávaxnar fjallaplöntur, stoðblöð löng, jafnlöng krónu, krónuflipar sýldir. Heimk.: Kashmírvar. macrocarpa (Watt) Pax. - Smávaxin planta, gulmélug, bikar allt ----var. pulverea (Fedtsch.) Halda. - Plantan öll mjög mikið mélugar, rjómalitri mélu.