Primula nivalis

Ættkvísl
Primula
Nafn
nivalis
Íslenskt nafn
Snælykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Purpura.
Blómgunartími
Snemma vors.
Hæð
20-25 sm
Vaxtarlag
Blómstilkur 15-20 sm hár, þegar plantan er í blóma, allt að 35 sm hár við aldinþroskann.
Lýsing
Lauf allt að 15-25 x 1-4 sm, lensulaga eða mjóoddbaugótt, í byrjun með dálítið niðurorpna jaðra, verða seinna flöt, bogtennt eða tennt, hárlaus, ekki mélug eða lítið eitt mélug á neðra borði. Oddur næstum yddur eða snubbóttur, laufleggur stuttur með breiðan væng. Blómskipunin með 8-12 blóm, stoðblöð allt að 2 sm, lensulaga, ydd, grunnur gegnvaxinn, blómleggir allt að 2 sm, ytri blómleggir hangandi, bikar bollalaga, 0,1-1 sm, flipar lensulaga, króna purpura, 2-2,5 sm í þvermál, flipar aflangir, heilrendir.
Uppruni
M Asía.
Harka
4
Heimildir
= 1, www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=2&taxon-id=20017339, https://en.wikipedia.org/wiki/Primula
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í beð.
Reynsla
Er ekki í Lystigarðinum 2015. Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.