Primula Pruhonicensis Hybrids

Ættkvísl
Primula
Nafn
Pruhonicensis Hybrids
Íslenskt nafn
Elínarlykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Samheiti
Réttara: P. x pruhonicensis Bergmans
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómalitur
Gulur, vínrauður, fjólublár, hvítur.
Blómgunartími
Maí.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Myndar brúsk. Þetta er upprunalega blendingur milli júlíulykils (Primula juliae) og Laufeyjarlykils (P. vulgaris) upprunalega frá Pruhonice, kastala greifans Ernst Silva Tarouca við Prag, í Tékklandi, 1918. Nafnið P. Pruhoniciana hybrids nær yfir marga blendinga milli júlíulykils (P. juliae) og plantna úr Vernales grúppu Primula-deildarinnar (júlíulykils (P. juliae) x laufeyjarlykill (P. vulgaris) sem eru með blá blóm. Einnig eru til blendingar P. x helenae júlíulykils (P. juliae) & laufeyjarlykils (P. vulgaris) með marga blómliti.
Lýsing
Lauf glansandi, eru stundum rauðbrún snemma vors. Blómin stök á stöngulendum, blöð fremur stór og gróf, tennt.
Uppruni
Garðablendingur.
Sjúkdómar
Engir.
Heimildir
1, 12, jelitto.com/Seed/perennials/PRIMULA-x-pruhoniciana
Fjölgun
Skipting að blómgun lokinni, sáning að vori, fræ þarf ekki kuldameðferð.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í ker.
Reynsla
Elínarlykill hefur gengið undir fleiri nöfnum s.s. P. x helenae hort. og P. x juliana hort.Þessir blendingar vaxa vel og blómgast mjög mikið í frjóum, rökum jarðveg í hálfskugga. Það verður að fylgjast vel með því að "jarðvegsþreyta" skemmi þær ekki um of, því verður að skipta þeim á 3-5 ára fresti og færa þær á nýjan vaxtarstað, annars drepast þær.Yrki blómgast snemma vors og standa lengi í blóma.
Yrki og undirteg.
Gríðarlegur fjöldi yrkja í ræktun í Evrópu. Af þeim sem eru ræktuð í garðinum má nefna eftirfarandi (fleiri yrki til en með styttri reynslu)'John Mo' sem er fölgul blóm.'Wanda' sem er purpurarauð blóm. Bæði hafa staðið sig með eindæmum vel í Lystigarðinum.