Primula reidii

Ættkvísl
Primula
Nafn
reidii
Íslenskt nafn
Skálalykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur eða beinhvítur.
Blómgunartími
Maí.
Hæð
10-15 sm
Vaxtarlag
Háfjallaplöntur sem eiga víst snjóskýli á heimaslóðum.
Lýsing
Lauf 5-20 x 2-3 sm, aflöng til aflöng-lensulaga, snubbótt eða bogadregin, flipar tenntir til gróf bylgjaðir með löng, margfruma hár, mjókka smám saman að leggnum. Blómstönglar 6-15 sm háir, hárlausir, hvítmélugir ofan til, lengri en laufin með 3-10 (sjaldan aðeins eitt) legglaus blóm. Bikarinn 6-9 mm, breiðbjöllulaga, grænn eða purpura á bláblóma afbrigðum, jaðrar hærðir. Krónan um það bil 2 sm breið, hvít eða beinhvít oft mélug utan. Pípan 9-10 mm, víkkar snöggt í bjöllulaga krónu. Flipar breið-bogadregnir og sýldir.
Uppruni
N Pakistan, V & M Nepal, Indland.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
6
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að hausti, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í beð.
Reynsla
Tegundir úr þessari deild þykja fremur erfiðar í ræktun og því hefur reynst erfitt að ná í fræ nema af örfáum tegundum. Hefur verið reynd í garðinum en ekki lifað lengi hverju sinni.Erlendis er tegundin oftast ræktuð í pottum í góðri laufmoldarblöndu, hafðar í sólreit yfir veturinn en færðar út að vori, þurfa reglulega vökvun yfir sumartímann
Yrki og undirteg.
var. williamsii Ludlow. er grófgerðari, stærri en aðaltegund að öllu leyti, blóm yfirleitt fölblá eða blá með hvítt auga. Heimk.: VM Nepal.