Primula rosea

Ættkvísl
Primula
Nafn
rosea
Íslenskt nafn
Rósulykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Rósbleikur með gulu auga.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
5-12 sm
Vaxtarlag
Lík sumum afbrigðum tyrkjalykli (P. auriculata) en er ekki mélug, venjulega eru engir blómstönglar í fyrstu, en lengjast er líður á sumarið.
Lýsing
Blóm í strjálblóma sveipum. Krónan allt að 3 sm breið, enginn kragi, rósbleik með gult auga.
Uppruni
NV & V Himalaja.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
6
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að hausti, skipta þarf að minnsta kosti annað hvert ár, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í fjölæringabeð.
Reynsla
Með allra fallegustu lyklum en skaðast oft í umhleypingum á vorin, skýla þar sem snjóþekja er óstöðug. Nokkur eintök í uppeldi garðinum + í steinhæð.
Yrki og undirteg.
'Gigas' allt að 10 sm, stór, skærbleik blóm.'Grandiflora' allt að 20 sm, stór, bleik blóm.'Micia Visser de Geer' með fölbleik blóm.