Primula sieboldii

Ættkvísl
Primula
Nafn
sieboldii
Íslenskt nafn
Freyjulykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Purpura, rauðrófupurpura, rauður, bleikur eða hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Sumargrænar skriðular plöntur.
Lýsing
Lauf upprétt, fölgræn með löng, strjál hér bæði ofan og neðan. Blaðkan 2-10 x 2-7 sm, egglaga til aflöng-egglaga, hjartalaga í grunninn eða því sem næst, bogadregin í oddinn, jaðrar með margar reglulegar, snubbóttar tennur eða stutta flipa, laufleggir 2-12 sm, ögn kjötkenndir, venjulega áberandi hærðir.Blómstönglar 6-30 sm, uppréttir, hærðir neðan til, hárlausir eða lítið eitt hærðir ofantil með 1 til 2 kransa, 2-15 blóma. Blómleggir 5-40 mm, meira eða minna uppréttir. Bikar 5-12 mm, stækkar við aldinþroskann, bjöllulaga, hárlaus eða lítt hærður, flipar með smáhár á jöðrunum, útstæðir. Krónan 1-3,5 sm í þvermál, flöt skífa með kraga, purpura, rauðrófupurpura, rauð, bleik eða hvít, oftast með hvítt auga. Krónupípanum það bil 2 sinnum bikarinn, flipar breiðskiptir í 2 hluta sem stundum eru gróftenntir. Fræhýði styttri en bikarinn.
Uppruni
A Kína, Japan, Kórea, Rússland.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í beð norðan og austan við hús.
Reynsla
Vex best í frjóum, rakaheldum jarðvegi á skuggsælum stað.