Primula suffrutescens

Ættkvísl
Primula
Nafn
suffrutescens
Íslenskt nafn
Runnalykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær, trjákennd planta.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Bleikur, rósrauður, rauður eða purpura.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
10-15 sm
Vaxtarlag
Opnar blaðhvirfingar, trékennd planta og skriðul, dauð lauf hanga lengi á plöntunum.
Lýsing
Blaðhvirfingar með legglausa límkirtla. Lauf þykk, 1,5 - 4 sm x 5-10 mm, fleyglaga til spaðalaga, bogadregin í oddinn, tennt ofan til en mjókka smám saman í vængjaðan legg, dökkgræn á efra borði en gulleit á því neðra. Blómstönglar allt að 5 sm við blómgun en lengjast í 12 sm við aldinþroska, grannir beinir með 1-9 blóm í sveip. Stoðblöð 3-6 mm, mjó. Blóm mislegglöng, leggir 5-15 mm langir. Krónan allt að 2 sm í þvermál, flöt skífa, bleik, rósrauð, rauð eða purpuralit með gult auga. Krónupípa gul, um það bil 2 x lengri bikarinn.
Uppruni
SV Bandaríkin.
Sjúkdómar
Engir.
Heimildir
= 2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Skýldir staðir norðan og austan við hús.
Reynsla
Rækta í hálfskugga í vel framræstri safnhaugamold. Þarf vetrarskýli til að verjast vætu að vetri. Reynsla stutt, lifði stutt.