Primula waltonii

Ættkvísl
Primula
Nafn
waltonii
Íslenskt nafn
Völvulykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Jarðarberjableikur til vínrauður.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
40-50 sm
Vaxtarlag
Stinnir uppréttir blómstönglar, laufin í stofnhvirfingum.
Lýsing
Laufblaðkan um það bil 1,5 x 3 sm, öfugegglaga til oddbaugótt, jaðrar bylgjaðir til hvasstenntir og tennur vita fram á við, grunnur fleyglaga; ögn blágræn ofan, miðstrengur hvítleitur. Laufleggur stuttur eða jafnlangur blöðkunni með mjóa vængi, hvítleitir. Blómstönglar allt að 50 sm háir hjá ræktuðum plöntum með um 7-30 blómasveip af drúpandi blómum. Blómleggir allt að 7 sm, rjómalitir til mélugir, sterklegir. Bikar allt að 1 sm, bjöllulaga, mélugur en oft purpuralitur. Krónan allt að 2 sm breið, mjó- eða breiðtrektlaga, með ávaxtailm, jarðarberjableik til vínrauð og með rautt auga. Krónublöð mélug á efra borði, sjaldan rjómalit eða hvít, flipar heilir eða grunnsýldir. Fræhýði nær rétt fram úr bikarnum. Fræ allt að 1,2 mm, brún.
Uppruni
NA Indland, Bútan, SV Kína.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
6
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að vori, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í blómaengi, í fjölæringabeð.
Reynsla
Afar harðgerð og auðræktuð tegund. Sáir sér töluvert, að minnsta kosti norðanlands og á það til að mynda blendinga með öðrum tegundum Harðgerðastur lyklanna og fer hærra upp í Himalajafjöllum en nokkur annar lykill.
Yrki og undirteg.
Ýmis konar blendingar og litaafbrigði hafa komið upp við sjálfsáningu, blendingar með kínalykli algengir.