Primula x pubescens

Ættkvísl
Primula
Nafn
x pubescens
Yrki form
'Monarch'
Íslenskt nafn
Frúarlykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Mólilla, skærbleikur, dökkbjólublár, hvítur, augað gult.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Lágvaxnar, þéttar plöntur, ekkert mél á blöðum og blómum.
Lýsing
Laufin heil í þéttum hvirfingum við jörð, mynda smá saman þó nokkrar breiður. Blóm á stöngulendum blaðlausra stöngla í fáblóma sveipum.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
1, penprimulas.com, davesgarden.com
Fjölgun
Skipting haust eða vor, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í skrautblómabeð, í þekju/breiður.
Reynsla
Harðgerð og auðræktuð planta. Ágæt sort. Í F01-G08 (980258)