Prunus avium

Ættkvísl
Prunus
Nafn
avium
Íslenskt nafn
Fuglakirsi
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 20 m erlendis.
Vaxtarlag
Tré allt að 20 m hátt erlendis með breiðkeilulaga krónu. Ungar greinar eru hárlausar.
Lýsing
Tré allt að 20 m hátt, (stöku sinnum allt að 30 m hátt) með breiðkeilulaga krónu. Ungar greinar eru hárlausar. Lauf 10,5×5 sm, aflöng-egglaga, odddregin, gróf- og óreglulega bogtennt, dúnhærð á aðalstrengnum og hliðarstrengjum á neðra borði. Laufleggir 3 sm langir, hárlausir, með kirtla. Blóm 2,5 sm í þvermál, hvít, í legglausum sveipum með allmörg blóm, bikartrekt 6 mm löng, breið-krukkulaga, hárlaus, bikarblöð aftursveigð. Steinaldin 2 sm, hjartalaga-egglaga, dökk dumbrauð.
Uppruni
Evrópa til Litlu-Asíu, Kákasus, V Síbería.
Harka
Z3
Heimildir
1, http://www.howtogrow.co.uk, http://www.magic-garden-seeds.com
Fjölgun
Græðlingar, sáning.Fuglakirsi er auðvelt að rækta upp af fræi. Fyrir þessi stóru, skurnhörðu fræ er nauðsynlegt að brjóta skurnina svo að fræin bólgni fyrr út. Fræin spíra í kulda. Sáninguna verður að geyma í kulda í nokkrar vikur (kælir) eða að sá fræinu mjög snemma vors eða að haustinu. Blandið fræið rökum sandi í plastpoka. Sáningunni þarf að halda við um 20°C og rakri mold fyrstu 2-4 vikurnar. Eftir það er hún sett í kæli við 5°C í 5-6 vikur. Því næst er pokinn tekin úr kælinum og hafður við stofuhita. Fylgist af og til með því hvort fræin spíra.
Notkun/nytjar
Stök tré eða í stór beð. Að rækta fuglakirsiberjatré þarf bæði þolinmæði og tíma, það líða mörg ár áður en trén fara að bera fyrstu uppskeru. Þegar fuglakirsitré eru ræktuð þarf fleiri en eitt tré. Ólíkt súrkirsi sem eru sjálffrævandi þarf súrkirsi frjó frá öðru tré. Ef þú hefur ekki nóg pláss í eigin garði fyrir tvö-þrjú fuglakirsitré gætirðu spurt grannana hvort þeir geti hugsað sér að rækta þessi tré. Það gæti tryggt að frævun eigi sér stað.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum en hefur verið sáð.
Útbreiðsla
Löglegt nafn samkvæmt The Plant List of Royal BG, Kew and Missouri BG (2011) er: Padus avium Mill.