Prunus brigantina

Ættkvísl
Prunus
Nafn
brigantina
Íslenskt nafn
Alpaaprikósa
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
P. armeniaca brigantina. Armeniaca brigantina.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur, fölbleikur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 6 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni eða lítið runnkennt tré, allt að 6 m hátt. Greinar stuttar.
Lýsing
Lauf allt að 7,5-6,5 sm, egglaga eða breiðegglaga, stuttydd oft ögn hjartalaga við grunninn, tvísagtennt, dúnhærð neðan, einkum á aðalæðastrengnum og hliðaæðunum. Laufleggir allt að 17 mm. Blóm 2 sm í þvermál, 2-5 saman, hvít eða fölbleik. Steinaldin smá, skærgul, slétt aprikósa.
Uppruni
SA Frakkland (Briançon).
Harka
Z7
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eu til þrjár plöntur sem sáð var til 2007, er í reit (2012).