Prunus grayana

Ættkvísl
Prunus
Nafn
grayana
Íslenskt nafn
Lóheggur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 9 m
Vaxtarlag
Lítið, fremur þéttvaxið tré allt að 9 m hátt í heimkynnum sínum. Ungar greinar hárlausar eða ögn dúnhærðar.
Lýsing
Lauf 9×4,5 sm, aflöng-egglaga til aflöng-öfugegglaga, odddregin, dálítið dúnhærð á miðstrengnum, tennur fín-týtuyddar. Laufleggir 1 sm langir, ekki með kirtla. Blóm 1 sm í þvermál, hvít, í margblóma klasa. Bikarblöð mjög smá, krónublöð baksveigð. Steinaldin 8 mm í þvermál, svört, steinar eru sléttir.
Uppruni
A Asía Kína, Japan.
Harka
Z6
Heimildir
1, http://en.hortipedia.com, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í beð, sem stakstæt tré.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum.
Útbreiðsla
Löglegt nafn samkvæmt The Plant List of Royal BG, Kew and Missouri BG (2011) er: Padus grayana (Maxim.) C.K. Schneid.