Pulsatilla albana

Ættkvísl
Pulsatilla
Nafn
albana
Íslenskt nafn
Persabjalla
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Samheiti
Anemone albana Stev.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
- 18-30 sm
Vaxtarlag
Náskyld kúabjöllu (Pulsatilla pratensis), 5-18 sm há þegar hún blómstrar, allt að 30 sm þegar fræin eru fullþroskuð. Grunnlauf 2,5-6 sm, aflöng að utanmáli, tvífjaðurskipt með 3-4 pör af fyrstu skiptingu, önnur skipting djúp fjaðurskipt, fliparnir lensulaga eða bandlaga, því sem næst snubbótt, heilrend eða ögn skert-tennt, mjúkhærð, nema á neðra borði. Reifablöð allt að 30 sm, bandlaga, sljóydd.
Lýsing
Blómin drúpandi, bjöllulaga með mjóan grunn, allt að 2,5 sm, blómhlífarblöð aflöng-oddbaugótt, aftursveigð efst, gul, með þétt, aðlæg silkihár á ytra borði. Fræflar ná ekki út úr blóminu. Hnetur með brodd allt að 2,5 sm.
Uppruni
Kákasus, NA Tyrkland.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til planta sem sáð var til 2003 og gróðursett í beð 2007 og önnur sem sáð var til 2010 og gróðursett í beð 2015, báðar þrífast vel. Allharðgerð planta, en ákaflega sjaldgæf hérlendis (kennd við borgina Albana við Kaspíahaf).