Pulsatilla campanella

Ættkvísl
Pulsatilla
Nafn
campanella
Íslenskt nafn
Klukkubjalla
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bláfjólublár til lilla.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
20-40 sm
Vaxtarlag
Fjölærar jurtir, 14-20 sm háar, en allt að 40 sm þegar aldinin eru fullþroskuð. Jarðstönglar 2,5-4 mm í þvermál. Laufin 5-8, hafa breitt alveg úr sér við blómgun, laufleggur 2,5-12 sm, með löng hár. Laufblaðkan egglaga til mjó egglaga, 2,8-6 x 2-3,5 sm, 3-laufa en neðstu smálaufin eru með sama forminu og hliðarfliparnir á miðflipanum, 2-fjaðurskipt, lítið eitt hærð neðan, næstum hárlaus ofan, neðri smálaufin og hliðarflipar enda smálaufsins ósamhverfir-egglaga, fjaðurskipt, endafliparnir mjó lensulaga til mjó egglaga, um 1 mm breið, hvassydd.
Lýsing
Blómstönglar 1 eða 2, upprétir, 2,5-4,5 sm, lengjast í 22 sm þegar aldinin hafa náð fullum þroska, hærðir. Reifablöð um 1,8 sm, vaxin saman neðst í 2 mm pípu, efst djúp 3-flipótt, flipar mjó lensulaga, smádúnhærð neðan, heilrend eða með 3 flipum. Blómin álút áður en þau springa út. Bikarblöð bláfjólublá til lillalit, upprétt, oddbaugótt til egglaga, 1,4-1,9 x 0,8-0,9 sm, smádúnhærð neðan, ögn niðursveigð efst. Frjóhnappar gulir. Blómskipun með aldinum um 5 sm í þvermál. Hnetur um 4 mm, langdúnhærðar. Stílar langæir, 1,5-2,4 sm.
Uppruni
Kína, Afganistan, Kazakhstan, Kyrgistan, Mongólí, Pakistan, V Síbería, Tajikistan.
Heimildir
= www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=2&taxon-id=200008052, Flora of China
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skrautblómabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er planta sem sáð var til 2012 og gróðursett í beð 2015, þrífst vel.