Pulsatilla occidentalis

Ættkvísl
Pulsatilla
Nafn
occidentalis
Íslenskt nafn
Rjómabjalla
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Samheiti
Réttara: Anemone occidentalis S. Watson
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur eða rjómahvítur, með purpura eða bláa slikju.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-60 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, stönglar 10-60(-75) sm, vaxa frá jarðstönglum, jarðstönglar uppsveigðir eða uppréttir. Grunnlauf (2-)3-6(8), skipt í 3 hluta (fyrsta skipting) og hvert smálauf síðan fjaðurskipt, laufleggur 6-8(-12) sm, enda smálauf með legg, egglaga að utanmáli, (2,5)3-6(-8) sm, grunnur fleyglaga, jaðrar fjaðurskiptir til flipóttir alla leið, mjó ydd, mjúkhærð bæði ofan og neðan, hliðarsmálauf 2 skipt, fjaðurskipt, endaflipar 2-3 mm breiðir.
Lýsing
Blómskipunun einblóma, blómleggur mjúkhærður eða þéttmjúkhærð, verður hárlaus. Reifablöð 3, stöku sinnum fleiri, í einni röð, meira eða minna eins og grunnlaufin, 3-flipa, egglaga að utanmáli, grunnur greinilegur, enda smálauf með legg, 2,5-7 sm (2,5 sm í blóma 7 sm eða styttri með þroskað fræ), jaðrar fjaðurskiptir, mjóyddir, mjúkhærðir bæði ofan og neðan, hliðarsmálauf 2-skipt, fjaðurskipt, endaflipinn 2-3 mm breiður.Bikarblöð 5-7, hvít eða rjómahvít með purpura eða bláa slikju ´z ytra borði, egglaga til öfugegglaga, sjaldan oddbaugótt, 15-30 x 10-17(-19) mm, hærð neðan, hárlaus ofan. Fræflar 150-200. Kollur hnöttóttur, sjaldan sívalur, leggur 15-20(-22) sm. Hnetan oddbaugótt, 3-4 x um 1,5 mm, ekki með væng, mjúkhærð, trjónan bogin eða baksveigð, aftursveigð með aldrinum, (18-)20-40(-50) mm, lang-mjúkhærð, lík fjöður.
Uppruni
N Ameríka (Alta, British Columbia, California, Idaho, Montana, Oregon, Washington).
Harka
4
Heimildir
= 1, www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=233500073
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skrautblómabeð.
Reynsla
Er ekki í Lystigarðinum 2015.