Pyrrocoma clementis

Ættkvísl
Pyrrocoma
Nafn
clementis
Íslenskt nafn
Geislahadda*
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærgulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, stönglar allt að 40 sm háir, útafliggjandi eða uppsveigðir, dálítið langhrokkinhærðir einkum ofantil. Lauf allt að 15 sm, flest grunnlauf, bandlaga-aflöng, heilrend eða tennt, randhærð, hárlaus að öðru leyti, með legg, stöngullaufin lensulaga eða egg-lensulaga, legglaus.
Lýsing
Karfan legglaus, stök eða fáar legglausar, endastæðar, smáreifar um 12 mm, breið-hvolflaga, nærreifar í allmörgum hvirfingum, öfuglensulaga, snöggydd, þær ytri stundum jafnlangar þeim innri. Geislablóm skærgul. Aldin um 6 mm, hærð.
Uppruni
Wyoming, Colorado, Utah.
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, í stórar steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2009 og gróðursett í beð 2010, þrífst vel.