Ranunculus flammula

Ættkvísl
Ranunculus
Nafn
flammula
Íslenskt nafn
Lensusóley
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, skjól, raklendi.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
50-80 sm
Vaxtarlag
Breytileg tegund. Stönglar uppréttir, uppsveigðir eða skriðulir, ræta sig á stöngulliðum.
Lýsing
Grunnblöðin 4 x 2,5 sm, sýllaga eða lensulaga til breiðegglaga, með legg, laufin eru enn til staðar við blómgun. Stöngullaufin eru breiðlensulaga til bandlensulaga, stundum tennt, ydd, stilkstutt eða legglaus. Blómin stök eða fá saman í kvíslskúf, 1-2,5 sm í þvermál. Bikarblöðin 5, grængul, krónublöðin 5, öfugegglaga. Blómbotninn hárlaus. Hnotin egglaga, 1-2 mm, trjóna stutt, oddlaus.
Uppruni
Evrópa, tempraði hluti Asíu.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Rök fjölæringabeð, tjarnarbakkar.
Reynsla
Vex bara vel í LA (ógr.).