Ranunculus gramineus

Ættkvísl
Ranunculus
Nafn
gramineus
Íslenskt nafn
Grassóley
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Sítrónugulur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
20-50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, með trefjarætur, stönglar grannir, 20-30 sm.
Lýsing
Grunnlaufin bandlaga til lensulaga, flöt, bláleit, hárlaus eða dúnhærð. Stöngullauf fá, legglaus. Blómin 1-3 á stönglinum, sítrónugul, allt að 2 sm í þvermál. Bikarblöð hárlaus, gulgræn. Krónublöð breið-öfugegglaga. Blómbotn hárlaus, fræhnotir 3 mm, ögn hliðflatar, með kjöl, æðóttar, trjóna stutt, bein.
Uppruni
Fjöll S Evrópu, N Afríka.
Harka
7
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í skrautblómabeð.
Reynsla
Harðgerð, fremur sjaldgæf garðplanta. Þrífst mjög vel hérlendis. Gott að skipta henni oft, verður þá lægri og þéttari. Hefur vaxið lengi í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
Ranunculus gramineus 'Flore Pleno' er með fyllt blóm.