Rhamnus catharticus

Ættkvísl
Rhamnus
Nafn
catharticus
Íslenskt nafn
Geitastafur
Ætt
Hrökkviðarætt (Rhamnaceae).
Samheiti
Cervispina cathartica (L.) Moench.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Gulgrænn.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
Allt að 6 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni eða lítið tré, allt að 6 m hár og 3 m í þvermál. Greinar grágrænar eða brúnar, þyrnóttar.
Lýsing
Laufin 3-7 sm, sumargræn, með lauflegg, egglaga til oddbaugótt, æðastrengir í 2-5 pörum, hvassydd eða snubbótt, hárlaus eða ögn hærð að neðra borði, jaðrar með 40-70 litlar tennur á hvorri hlið, laufleggur allt að 2 sm langur. Blómskipun með 10-15 blómum, í knippum. Blómin 4-5 mm, bjöllulaga, 4-deild, gulgræn. Bikarflipar þríhyrndir-lensulaga, yddir. Aldin 6-8 mm í þvermál, hnöttótt, glansandi-svört, fræ 3 talsins, 3-4 mm í þvermál.
Uppruni
Evrópa, N Afríka, V Asía.
Harka
Z3
Heimildir
= 1,www.pfaf.org/User/Plant.aspx?LatinName=Rhamnus+cathartica
Fjölgun
Fræi er sáð í sólreit að haustinu, geymt fræ þarf að forkæla í 1-2 mánuð við +5°C. Síðsumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í blönduð trjá- og runnabeð, í limgerði.Blómin eru í sérbýli, þ.e. blómin eru annað hvort kvenkyns eða karlkyns og aðeins að finna á sitt hvorri plöntunni. Þess vegna verður að rækta runna af báðum kynjum til að fá fræ. Planta frjóvgar sig ekki sjálf.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1987 og ein sem sáð var 1989, tvær hinar fyrrrnefndu voru gróðursettar í beð 1988 og sú þriðja 1992. Allar hafa kalið nokkuð.