Rheum alexandrae

Ættkvísl
Rheum
Nafn
alexandrae
Íslenskt nafn
Drottningarsúra
Ætt
Súruætt (Polygonaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulhvítur (óásjáleg).
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
60-150 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt. Stönglar uppréttir, allt að 150 sm.
Lýsing
Lauf allt að 22 x 13 sm, egglaga-aflöng, hjartalaga við grunninn, óskipt, dökkgræn í nettri blaðhvirfingu, hárlaus, leggurinn grannur, jafn langur og blaðkan. Stoðblöð allt að 10 sm, gulgræn, þunn, hálfhjartalaga, skarast ekki en hylja greina blómskúfsins að hálfu, grængul í strjálum, axlastæðum skúfum.
Uppruni
V Kína, Tíbet.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, sem stakstæð planta.
Reynsla
Harðgerð, hefur reynst vel í Lystigarðinum, ræktuð vegna sérkennilegra háblaða.