Rheum palmatum

Ættkvísl
Rheum
Nafn
palmatum
Íslenskt nafn
Skrautsúra
Ætt
Súruætt (Polygonaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúprauður.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
100-150 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 150 sm há.
Lýsing
Laufin 50-90 x 50-70 sm, næstum kringlótt, handflipótt, fliparnir egglaga til lensulaga, hjartalaga við grunninn, með 3-5 æðar, með gróf hár á æðunum á neðra borði, jaðrar heilrendir til gróftenntir, laufleggurinn næstum sívalur. Blómin í strjálblóma, dúnhærðum skúfum, djúprauð. Aldin 6-7 mm, með væng, aflöng, hjartalaga.
Uppruni
NV Kína.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Stakstæð jurt, í bakgrunn í skrautblómabeði.
Reynsla
Harðgerð planta.
Yrki og undirteg.
Algeng afbrigði R. p. var. tanguticum; 'Atrosanguineum' og 'Bowles Variety' eru yrki sem vert er að prófa hérlendis.