Rhodiola kirilowii

Ættkvísl
Rhodiola
Nafn
kirilowii
Íslenskt nafn
Tröllasvæfla
Ætt
Hnoðraætt (Crassulaceae).
Samheiti
Sedum kirilowii
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulgrænn eða brúnrauður.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
0.6-0.8m
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 90 sm há, einkynja, jarðstönglar greinóttir, sverir, þaktir hreisturblöðum.
Lýsing
Blómstönglar kröftugir, uppréttir. Laufin stakstæð, 40-90 x 3-6 mm, bandlaga eða meira eða minna lensulaga, þétt á stönglinum, jaðrar óreglulega hvasstenntur efst. Blómskipunin með mörg blóm, í sveipkenndum skúf, blómin allt að 6 mm í þvermál, bikarblöð 5, bandlaga, rauð-græn, hvassydd. Krónublöð 5, 3-5 mm, öfugegglaga-öfuglensulaga, fremur bandlaga í kvenblómum, hvassydd, gulgræn eða brúnrauð, fræflar lengri en krónublöðin, engir í kvenblómum.
Uppruni
M Asía, Tíbet, Kína, Mongólía.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð, í kanta (með plöntum sem hylja eyðu).
Reynsla
Harðgerð, gulnar þegar líður á sumarið, best að klippa þá niður.
Yrki og undirteg.
var. rubrum er ef til vill mest ræktað með ryðbrúnrauð blóm og blómgast snemma eða í maílok eða júníbyrjun.