Rhododendron calostrotum

Ættkvísl
Rhododendron
Nafn
calostrotum
Íslenskt nafn
Þekjuróslyng
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Rauðrófupurpura.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
5-150 sm
Vaxtarlag
Jarðlægur, uppréttur runni eða breiða, 5-150 sm hár.
Lýsing
Ungir sprotar með hreistur, broddhár aðeins í fyrstu og þá fremur fá. Lauf 1-3,3 sm, aflöng egglaga til næstum kringlótt efra borð yfirleitt með langæ, þurr hreistur, jaðrar með þornhár. Neðra borð með þétt hreistur sem skarast, í 3-4 röðum, þær efstu með legg og bollalaga kanta. Klasar 1-5 blóma. Bikarflipar egglaga til aflangir, oft misstórir, með mismunandi hreistri og hæringu á ytra borði, jaðrar með þornhár, innra borð smá dúnhærð. Króna 1,8-2,8 sm, rauðrófupurpura, sjaldnar bleik eða purpuralit oft með dekkri doppur á efri flipunum, með hár eða dálítið hreistur á ytra borði. Eggleg hárlaust en með hreistur. Fræhýði 6-9 mm með hreistur.
Uppruni
NA Indland, N Burma, V Kína.
Harka
Z6
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í runnabeð þar sem birta er síuð til dæmis gegnum krónur trjáa.
Yrki og undirteg.
Gigha. Þéttvaxið, blómviljugt kvæmi, með bleikrauð blóm. ---- Rocks form. Blómin stór, blápurpura. Laufið með purpuraslikju. ----ssp. calostrotum. Lauf 1,2-2,2 × 0,7-2 sm, hreistur á efra borði langæ, snubbótt, hreistur á neðra borði greinilega í 3-4 röðum. Blóm 1-2 í hverjum klasa, leggir 1,6-2,7 sm. N Burma, V Kína. ---- ssp. riparium (Kingdon-Ward.) Cullen. Er eins og ssp. calostrotum nema blómin eru 2-3 í hverjum klasa og blómleggir 1-1,5 sm langir. NA Indland, NA Burma, V Kína. ---- Rhododendron calostrotum Balf. & Kingdon-Ward. ssp. keleticum (Balf. & Forr.) CullenSamnefni: Rhododendron keleticum Balf. & Forr. Jarðlægur smárunni. Lauf 2-9 mm breið, ydd, ekki með hreistur og glansandi dökkgræn á efra borði. NA Burma, V Kína. ---- Síðastnefnda undirtegundin er háfjallaafbrigði og er líklega ræktað víðast af þessum undirtegundum, sum afbrigði hennar eru alveg jarðlæg og það eru þær plöntur sem nefndar eru R. radicans, ein þessara er foreldri R. Radmosum(× R. racemosum).