Rhododendron caucasicum

Ættkvísl
Rhododendron
Nafn
caucasicum
Íslenskt nafn
Kákasuslyngrós
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur til gulur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
- 100 sm
Vaxtarlag
Lítill, sígrænn runni, allt að 1 m hár, ungir sprotar lítið eitt lóhærðir.
Lýsing
Lauf 4-7,5 sm, öfugegglaga til oddbaugótt, 2,2-3 sinnum lengri en þau eru breið, hárlaus á efra borði, á neðra borði er þétt, móleit eða brún hæring. Bikar 1-2 mm, hærður. Króna 3-3,5 sm, breið-bjöllulaga, hvít til gul, stundum með bleika slikju og með grænar doppur. Eggleg þétthærð, með greinótt hár, stíll hárlaus. Fræhýði 1,5-2 sm.
Uppruni
Tyrkland, Kákasus.
Harka
Z6
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sáning, síðsumargræðlingar með hæl (hormónameðferð).
Notkun/nytjar
Í þyrpingar eða stakstæður runni, í blönduð runnabeð þar sem birtan er síuð gegnum krónur trjáa.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru tvær plöntur sem sáð var til 2000 og gróðursettar voru í beð 2004. Kala mismikið, hafa ekki blómstrað.