Rhododendron smirnowii

Ættkvísl
Rhododendron
Nafn
smirnowii
Íslenskt nafn
Dúnlyngrós
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
- 4 m
Vaxtarlag
Sígrænn runni, allt að 4 m hár, ungir sprotar með þétt, hvít ullhár.
Lýsing
Lauf 7,5-14 sm, öfuglensulaga-oddbaugótt, 2,8-4,5 sinnum lengri en þau eru breið, efra borðið hárlaust þegar laufin eru fullvaxin, neðra borðið er með þétta, hvíta til brúna hæringu. Bikar 2-3 mm, með breið-þríhyrnda flipa, sem hafa dálitla dúsk-hæringu og nokkra leggstutta kirtla. Króna 3,5-4 sm, trekt-bjöllulaga, bleik með gular doppur. Eggleg með þétt hvít hár, engir kirtlar. Fræhýði allt að 1,5 sm.
Uppruni
Tyrkland, Georgía.
Harka
Z4
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í runnabeð þar sem birtan er síuð til dæmis gegnum trjákrónur.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein planta með þessu nafni, sem sáð var 1989 og gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Kelur yfirleitt lítið, blóm af og til.