Ribes cereum

Ættkvísl
Ribes
Nafn
cereum
Íslenskt nafn
Vaxrifs
Ætt
Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur, grænn eða gulur.
Blómgunartími
Maí.
Hæð
1-2 m
Vaxtarlag
Þéttgreindur runni, 1-2 m hár. Greinarnar þyrnalausar, sprotarnir kirtildúnhærðir í fyrstu.
Lýsing
Laufin kringlótt, nýrlaga, 1-4 sm breið, með 3-5 snubbótta flipa, jaðrar bogtenntir, næstum slétt ofan. Kirtildúnhærð, gráleit neðan. Blómskipunin stuttur, hangandi klasi með fáein blóm, blómin 6-8 mm, pípulaga, hvít, græn eða gul. Bikarblöð lítil, allt að 2 mm, krónublöð mjög smá, kringlótt, Stíll með löng dúnhár. Ber hnöttótt, skarlatsrauð, hárlaus, glansandi.
Uppruni
V Bandaríkin.
Harka
5
Heimildir
= 1, www.pfaf.org/user/plant.aspx?LatinName=Riebes+cereum
Fjölgun
Sáning strax og fræið er þroskað að haustinu í sólreit. Fræ sem hefur verið geymt þarf 4-5 mánaða forkælingu milli -2°C og 0°C og það ætti að sá því eins fljótt og hægt er. Síðsumargræðlingar með hæl, 10-15 sm langir í sólreit síðsumars eða að haustinu.
Notkun/nytjar
Í runnabeð, í þyrpingar og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta, sem kelur ekkert og myndar ber (2011) og þrjár sem sáð var til 1988. Þær hafa kalið dálítið framan af, orðnar um 1,3 m háar, en eru í of miklum skugga (2011).
Yrki og undirteg.
v. fariosum Jancz. Greinar fremur slapandi, sprotar fjólubláir í fyrstu. Lauf grá, kirtlar framleiða gúmmíkennda kvoðu. Blóm bleik eða hvít. ε