Ribes diacanthum

Ættkvísl
Ribes
Nafn
diacanthum
Íslenskt nafn
Mongólarifs
Ætt
Garðaberjaætt (Grossulariaceae)
Lífsform
Sunargrænn runni.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Grænn eða grænhvítur.
Hæð
- 2 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni með þyrna.
Lýsing
Uppréttur runni, allt að 2 m hár. Greinarnar sléttar með tvískipta þyrna neðan við liðina. Tvískiptu þyrnarnir eru umkringdir af mörgum smáum þyrnum. Lauf 2,5-3,5 sm egglaga eða öfugegglaga, með þrjá, grunna, snubbótta flipa, gróftennta, efra borð laufa slétt, glansandi. Blómin einkynja, í uppréttum klösum, græn eða grænhvít. Karlklasar allt að 5 sm langir kvenklasar styttri. Berin 0,5 sm, hálfhnöttótt, græn-skarlatsrauð, hárlaus.
Uppruni
N Asía, Síbería, Kína (Mandsjúría).
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1988. báðar hafa kalið ögn flest ár, en vaxa vel, eru 1,3-2 m háar. Þroskuðu ber 2011.