Ribes hispidulum

Ættkvísl
Ribes
Nafn
hispidulum
Íslenskt nafn
Hærurifs
Ætt
Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Samheiti
Ribes spicatum subsp. hispidulum (Janch.) L.Hämet-Ahti
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Gulgrænn.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
Allt að 2 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 2 m hár. Sprotar eru ljósir, oftast þaktir leggjuðum kirtilhárum, oft með löng mjúk hár.
Lýsing
Lauf næstum alltaf þrí-flipótt, flipar eru breiðir og meira eða minna snubbóttir. Efra borðið er hárlaust eða með ögn af hárum, neðra borðið getur verið hárlaust eða þétt þakið dúnhárum, oft með kirtilhár eftir æðastrengjunum. Laufgrunnurinn er hjartalaga eða þverstýfður. Leggir laufa eru aðallega kirtilhærðir og þornhærðir, stundum dúnhærðir. Klasar vita upp á við eða eru ögn drúpandi, 3-6 sm langir, fremur þéttblóma, með 6-12(16) blóm. Aðalleggur og blómleggir mislangir eða frá 2,5 til 5(7) mm langir, ögn kirtilhærðir. Blómin eru lítil, 3-4 mm í þvermál, gulgræn, með hárlausan, grænleitan blómbotn og íhvolft blómstæði. Bikarblöð eru grængul, hárlaus á jöðrunum. Berin eru 8-10 mm breið, rauð, mjög safarík, bragðið súrt.
Uppruni
Vestur Síbería til Yenisei ( nema allra nyrst), Altai, fjöllin í austur og norður Kazakhstan, fjöll við Zaysan-vatnið, suður og mið Úralfjöll, Pechora-ár basin, og vestur á bóginn yfir Volgu.
Heimildir
http://www.agroatlas.ru
Fjölgun
Sáning, síðsumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Berin notuð til matar og sem uppspretta vítamína
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta upp af fræi frá Moskvu frá 1980. Hún kelur ekkert, er um 3 m há og var með ber 2011.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Vex á flæðilandi og meðfram lækjarfarvegum, í skógarjöðrum og meðal runnagróðurs.