Ribes laxiflorum

Ættkvísl
Ribes
Nafn
laxiflorum
Yrki form
'Rökkva'
Íslenskt nafn
Hélurifs
Ætt
Garðaberjaætt (Grossulariaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Rauður.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
Allt að 0,5 m
Vaxtarlag
Jarðlægur runni.
Lýsing
Mjög blaðfallegt kvæmi, slétt og litsterk blöð, skærir haustlitir. Þekur fljótt og vel, myndar ekki ber. &
Uppruni
Klón.
Harka
5
Heimildir
1, http://yndisgrodur.lbhi.is
Fjölgun
Síðsumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Sem þekjuplanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem voru fengnar úr Kjarna 1999. Þær kala ekkert, eru mjög gróskulegar (2011).