Ribes nigrum

Ættkvísl
Ribes
Nafn
nigrum
Yrki form
Öjebyn
Íslenskt nafn
Sólber
Ætt
Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Grænn á ytra borði, rauðhvítur á því innra.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
- 2 m
Vaxtarlag
Úrval fræplantna frá N-Svíþjóð frá 1953. Kröftugur, harðgerður, uppréttur runni, að minnsta kosti 1,5 m hár og 2-3 m breiður, liggur nokkuð útaf og ætti að fá stuðning.
Lýsing
Berin meðalstór til stór, keimgóð og ilma vel, eru með þunnt hýði. Klasinn er af meðallengd, myndar gnótt af berjum. Berin góð að borða beint af runnanum og í saft.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Runninn hefur mótstöðuafl gegn mjölsvepp, spunamaurum/mítlum.
Harka
5
Heimildir
http://www.sveplantinfo.se, http://www.bogront.no, http://www.lbhi.is, http://sprl.ars.usda.gov, http://www.vaxtwko.nu
Fjölgun
Fjölgað með síðsumar- og/eða vetrargræðlingum.
Notkun/nytjar
Berin eru notuð í berjamauk, saft eða fryst.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta, græðlingur frá Grasagarðinum í Reykjavík 1995. Kelur ekkert og er mjög vöxtuglegur 2011.Getur kalið í kaldari sveitum og köldum árum norðanlands og austan. Blómgast seint og þroskar ber jafnt en fremur seint.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Berin innihalda fremur lítið C-vítamín