Ribes × pallidum

Ættkvísl
Ribes
Nafn
× pallidum
Yrki form
'Röd Hollandsk'
Íslenskt nafn
Rifsber
Ætt
Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Samheiti
Ribes spicatum Robson Rød Hollandsk / Röda Hollänska. R. rubrum Red Dutch.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Föl gulgrænn.
Blómgunartími
Snemma vors.
Hæð
1-1,5 m
Vaxtarhraði
Meðalhraður vöxtur.
Vaxtarlag
Rauð hollensk er gamalreynt yrki sem hefur verið í ræktun á Íslandi frá a. m. k. um 1830. Yrkið er upprunnið í Hollandi, kom fram fyrir 1729. Þetta er eitt elsta ef ekki elsta yrkið sem þekkt er. Plantan er stór, kröftug, upprétt, þétt, myndar mikið af berjum, hraust, lauf meðalstór, hálfhjartalaga til næstum þverstýfð við grunninn.
Lýsing
Blómin koma snemma, klasarnir eru fremur langir, meðal-þéttblóma, blómin hangandi og klasar með mörg blóm. Bikarpípan grænleit, skállaga, bikarflipar snubbóttir, aðskildir, fölgulgrænir, fremur ógreinileg. Berin um mitt sumar, klasar langir og grannir, 10-18 berja, mjög strjál, klasaleggir langir, berin föst á leggjunum, breytileg að stærð, hnöttótt, skær, glansandi rauð, hýðið hárlaust, berholdið kjötkennt, þétt, mikil gæði. &
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Hefur mikinn viðnámsþrótt gegn sjúkdómum.
Heimildir
http://www.ars-grin.gov, http://www.landstolpi.is
Fjölgun
Græðlingar.
Notkun/nytjar
Í runnabeð. Berin notuð í saft, sultu og hlaup eða fryst.
Reynsla
Þroskar ber hérlendis vanalega um og eftir mánaðarmót ágúst/september. Uppskera getur brugðist norðanlands í köldum sumrum. Rifsber eru mikið ræktuð um allt land.
Útbreiðsla
Ribes × pallidum Otto & F. Dietr. (Ribes petraeum × R. spicatum spicatum).