Rodgersia aesculifolia

Ættkvísl
Rodgersia
Nafn
aesculifolia
Íslenskt nafn
Kastaníulauf
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
(Sól), hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
-1.5m
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 200 sm há,
Lýsing
Laufin handskipt, smálaufin 5-9, allt að 25 sm, öfugegglaga, hvassydd, gróftennt, stönglar og æðasrengir með ryðbrúna lóhæringu. Blómskúfar allt að 60 sm, hliðflatir. Blómin hvít.
Uppruni
M Kína.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, við tjarnir og læki.
Reynsla
Harðgerð, hefur reynst vel í Lystigarðinum.