Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Winnipeg Parks'
Höf.
(?) Kanada.
Íslenskt nafn
Parklandsrós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa × damascena Winnipeg Parks.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Kirsuberjarauð-bleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
40-60(-90) sm
Vaxtarlag
Rosa 'Winnipegs Parks' er Rosa damacena blendingur og ein af svonefndu parklandsrósum. Runninn er þéttvaxinn, 40-60(-90) sm hár, getur orðið um 70 sm hár og álíka breiður.
Lýsing
Laufið er dökkgrænt og fallegra en á hinum parklandsrósunum, oddar laufanna eru vínrauðir fyrst á vorin. Blómin eru í klösum, knúbbarnir djúp bleikrauðir, með 17-25 krónublöð, blómin verða kirsuberjarauð-bleik þegar þau springa út, ilma vel, te-ilmur. Laufin verða rauð á haustin.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Með mikinn viðnámsþrótt gegn, mjölsvepp og ryðsvepp, viðkvæm fyrir svartroti.
Heimildir
http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml,davesgarden.com/guides/pf/go/70846/#b,plants.bachmanslandscaping.com/12070012/Plant/1367/Winnipeg-Park-Rose, www.helpmefind.com/rose/pl.php?n=6596
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Góð í blandað trjá- og runnabeð, góð til afskurðar.Sólríkur vaxtarstaður.
Reynsla
Rosa Winnipeg Parks var keypt í Lystigarðinn 2007. Höfð í beði á sumrin, skýlt á veturnar, tekin upp í kalt gróðurhús. Blóm komu að minnsta kosti 2007.