Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Pink Grootendorst'
Höf.
(Grootendorst 1923) Holland.
Íslenskt nafn
Ígulrós, garðarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Grootendorst Pink, Rosa Nelkenrose,
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærbleikur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
60-80 (-125) sm eða hærri.
Vaxtarlag
Þetta er ígulrósarblendingur með skærbleik blóm og stökkbreytt fræplanta af F.J. Grootendorst. Runninn er um 1,25 sm hár og álíka breiður, kröftugur. Stilkar eru mjög þyrnóttir.
Lýsing
Blómin eru smá, fyllt, með daufan ilm, allt að 20 í hverjum klasa. Nýpur að haustinu og laufið er með fallega haustliti.Rosa 'Pink Grootendorst' kemur stundum með sama blómlit og móðurplantan og þá er einstaklingurinn með báða blómlitina samtímis og þykir flott. Hún er einn besti blómstrandi runninn, bæði harðgerður og fallegur og er yfirleitt í blóma frá miðju sumri og fram á haust. Blómin eru smá, fyllt, kögruð, bleik og ilmlaus í stórum sveipum eða klösum. Nefnd nellikurós vegna þess að krónublöðin eru með kögur líkt og á nellikum. ;
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Með mikinn viðnámsþrótt gegn sjúkdómum.
Harka
Z3
Heimildir
Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - KøbenhavnPetersen, V. 1981: Gamle roser i nye haver. Utgivet av de danske haveselskaber København 1981, Thørgersen, C.G. 1988: Synopsis of Broadleved Trees and Shrubs cultivable as Ornamentals in Boreal Sweden Umeå, http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,www.cornhillnursery.com/retail/roses/rosea.htlm#RP,davesgarden.com/guides/pf/go/67417/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í beð á sólríkum og skjólgóðum stöðum.Rosa 'Pink Grootendorst' er mjög hraust planta.
Reynsla
Keypt í Lystigarðinn 1992 lifði til 1998. Til í görðum á Akureyri þar sem hún vex vel og blómstrar mikið árlega, kelur að vísu nokkuð stundum.