Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Schneezwerg'
Höf.
(P. Lambert 1912) Þýskaland.
Íslenskt nafn
Ígulrós, garðarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa Snow dwarf.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
80-130 sm
Vaxtarlag
Ígulrósarblendingur, upprétt, stór og mikil runnarós.Foreldrar: R. rugosa Thunb. × R. multiflora.Schneezwerg er ígulrósarblendingur (Rosa rugosa blendingur), upprétt, stór og mikil runnarós, allt að 150-200 sm há, alls enginn dvergur eins og nafnið bendir til - runninn er breiðvaxinni, allt að 150 sm breiður, laufin fremur smá, hrukkótt, milligræn, líkjast ígulrósarblöðum. Greinarnar eru með marga þyrna. Lotublómstrandi.
Lýsing
Blómin flöt-bollalaga, hálffyllt, snjóhvít með gula fræfla í miðju, ilma lítið, standa mjög lengi. Nýpurnar eru smáar til meðalstórar, rauðar og fallegar, er oft samtímis hvítum haustblómunum.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Viðkvæm fyrir ryðsvepp, mjölsvepp og blaðlús.
Heimildir
Bjarnason, Á.H. ritstj. 1996: Stóra garðblómabókin Alfræði garðeigandans - Reykjavík, Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, Petersen, V. 1981: Gamle roser i nye haver. Utgivet av de danske haveselskaber København 1981, Thørgersen, C.G. 1988: Synopsis of Broadleved Trees and Shrubs cultivable as Ornamentals in Boreal Sweden Umeå, http.//www.backyardgarden.com, http://www.greenfingers.com, http://www.shootgardiening.co.uk, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.floweringshrubfarm.com/rugosa.htm,davesgarden.com/guides/pf/go/80130/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Þrífst í næstum hvaða jarðvegi sem er, miðlungi rakur til rakur.Runninn nýtur sín best stakur, en er góður í limgerði, þarf snyrtingu. Klippið dauð blóm af runnanum. Berið áburð á reglulega.
Reynsla
Var sáð í Lystigarðinum 1992 sumar plönturnar dóu 1996 aðrar 2000.