Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Schneekoppe'
Höf.
(Baum 1986) Þýskaland.
Íslenskt nafn
Ígulrós, garðarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa rugosa Thunb. Snow Pavement, 'White Hedgen', Schneekopf.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
75-90 sm
Vaxtarlag
Kynbótamaðurinn var Karl Baum í Þýskalandi, yrkinu var komið í sölu 1984. Schneekoppe er ígulrósarrunni (Rosa rugosa-runni), harðgerður, kröftugur en lágvaxinn, 75-90(-250) sm hár og allt að 90(-120) sm breiður, kúluformaður. Einn besti runninn í limgerði.
Lýsing
Lotublómstrandi, blóm stundum fram á haust. Blómin stök, eru 5-7,5 sm breið, hvít, næstum hvít eða fjólubláhvít, hálfofkrýnd, ilma mikið. Að haustinu koma tilkomumiklar nýpur, rauðar og stórar, aldinkjötið mikið.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Ónæm fyrir svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
Harka
Z3
Heimildir
Hjörtur Þorbjörnsson, Grasagarði Reykjavíkur, http://www.backyardfarm.com,http://www.elisanet.fi/simolanrosario/a-uudet-sivut/uudet-ruusulistat/rosarugosa.html, http://www.helpmefind/com, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, http://www3.sympaico.ca/galetta/tales/clandscape_pavement.html, www.floweringshrubfarm.com/rugosa.htm, www.cornhillnursery.com/retail/roses/rosea.htlm#RP,davesgarden.com/guides/pf/go/64929/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Stakar plöntur, nokkrar saman eða í beð. Runninn er snyrtur eða klipptur árlega nokkuð niður.
Reynsla
Kom sem græðlingur í Lystigarðinn frá Grasagarði Reykjavíkur 2004, óvíst að hafi lifnað. Fín í Reykjavík. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Þetta er ein af svonefndu Pavement rósunum en þær eru bæði hraustar og fallegar. Þær þola miklar hitasveiflur og þrífast jafnt í mikilli sól og hálfskugga og eru þar að auki saltþolnar.