Rosa coriifolia

Ættkvísl
Rosa
Nafn
coriifolia
Íslenskt nafn
Skjárós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
R. deseglisei Boreau
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur eða hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
Um 200 sm
Vaxtarlag
Villirós. Þéttgreindur runni með uppréttar eða bogsveigðar greinar um 200 sm langar, með bogna þyrna, sem allir eru jafn langir.
Lýsing
Laufin sumargræn, smálaufin 5-7, aflöng til breiðoddbaugótt, snubbótt, hárlaus ofan, dúnhærð eða að minnsta kosti á æðastrengjunum, jaðrar með einfaldar eða samsettar tennur. Stoðblöð stór. Blómsæti hárlaus. Blóm 1-4, einföld. Bikarblöð með hliðaflipa, hærð eða hárlaus á ytra borði, upprétt eða útstæð og eru lengi föst við nýpuna. Krónublöðin hvít eða bleik. Stílar ekki samvaxnir, fræni ullhærð. Nýpur egglaga til hnöttóttar, rauðar, allt að 2,5 sm, sléttar.
Uppruni
Evrópa, Kákasus.
Harka
H3
Heimildir
2, practicalplants.org/wiki/Rosa-coriifolia.
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, rótarskot.
Notkun/nytjar
Rosa coriifolia er mjög lík R. dumalis. Sumir grasafræðingar álíta þær sömu tegundina. Aðrir grasafræðingar telja hana afbrigði R. dumalis ssp. boissieri og samkvæmt nafnareglum flokkunarfræðinnar ætti nafn hennar að vera R. dumalis Beshstein ssp. boissieri (Crépin) Nilson v. boissieri.
Reynsla
Skjárósinni var sáð í Lystigarðinum 1982, plantað í beð 1989, kelur lítið sem ekkert, þrífst vel. (2009).