Rosa foetida

Ættkvísl
Rosa
Nafn
foetida
Íslenskt nafn
Gullrós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
R. lutea Miller, Rosa eglanteria Mill. non L., Rosa cerea Rössig ex Redouté, Rosa eglanteria Redouté & Thory
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúpgulur.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
100-150 sm (-300 sm)
Vaxtarlag
Uppréttur runni, einblómstrandi. Greinar uppréttar eða bogsveigðar, 100-300 sm, dökkbrúnar í fyrstu, seinna gráleitar með fáeina, beina eða bogna, mislanga þyrna, breikka snögglega neðst, oftast líka með þornhár. Axlablöðin mjög mjó.
Lýsing
Laufin sumargræn, smálauf 5-9, oddbaugótt til öfugegglaga. 1,5-4 sm, snubbótt til næstum ydd. skærgræn, meira eða minna hárlaus á efra borði; daufgræn, dúnhærð og meira eða minna leyti með kirtla á neðra borði, jaðrar með fremur fáar, samsettar kirtiltennur. Engin stoðblöð. Blómstæðin slétt eða með þornhár. Blómin stök eða stundum 2-4, einföld, 5-7,5 sm í þvermál, með óþægilega lykt. Bikarblöðin heilrend eða með fáeina hliðarflipa, lensulaga, breikka í oddinn, hárlaus eða með kirtilþornhár upprétt og langæ. Krónublöðin djúpgul. Frænin hærð. Nýpur hnöttóttar, múrsteinsrauðar, 0,8-1 sm, sléttar eða með þornhár.
Uppruni
SV & V M Asía.
Harka
4
Heimildir
= 1, 2, Bjarnason, Á.H. ritstj. 1996: Stóra garðblómabókin Alfræði garðeigandans Reykjavík, http:/www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,davesgarden.com/guides/pf/go/165779/#b
Fjölgun
Sáning, sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingum, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæður runni, í blönduð beð.
Reynsla
Gullrósinni var sáð í Lystigarðinum 1992. Nokkrar plöntur hafa verið á reitasvæðinu. Þær kala allar, mismikið, rétt lifa, vaxa lítið. (2009).
Útbreiðsla
Dökkgul blómliturinn mikilvægur þegar rósin er notuð við kynblöndun rósa.